Vísir

Fréttamenn Vísis setjast niður með áhugaverðu fólki, kafa í málefni líðandi stundar og ræða það sem vekur athygli hverju sinni. Hlaðvarpið sameinar fréttir, mannlegar sögur og menningu í víðum skilningi. Frá stjórnmálum til poppkúltúrs – og öllu þar á milli.

Listen on:

Episodes

Aug 21, 2026

1 hr 29 min

„Ég tel að það sé útilokað að fá varanlega undanþágu frá stefnunni í heild sinni. Hins vegar er spurning um hvort hægt sé að hanna hlutina innan, þannig að við erum de facto með full yfirráð,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingur og fyrrverandi ritstjóri Evrópuvefsins.
 
Vilborg Ása er gestur dagsins í Vísi að viðræðum, þar sem Evrópumálin og komandi atkvæðagreiðsla um aðildarviðræður eru krufin til mergjar. Vilborg var ráðgjafi í alþjóðadeild Alþingis á árunum 2012-2018 og var starfsnemi hjá Evrópuþinginu 2010-2011.

Aug 21, 2026

1 hr 29 min

Aug 20, 2026

35 min

Verkalýðsforystan er klofin í afstöðu sinni til þess hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið í lok ágústs. Það breytist nánast ekkert í íslenskri vinnumarkaðslöggjöf með inngöngu í Evrópusambandið, að mati Sonju Ýrar Þorbergsdóttur formanns BSRB, enda löggjöfin að miklu leyti innleidd í gegnum EES. Sonja á erfitt með að skilja hvers vegna fólk haldi að staða og réttindi verkafólks myndu versna til muna með inngöngu, en vill samt ekki fullyrða hvort hún muni batna.

Aug 20, 2026

35 min

Aug 19, 2026

1 hr 8 min

Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur er gestur dagsins en hann hefur helgað stóran part starfsævinnar því að rannsaka þjóðernisvitund Íslendinga og sögu hennar. Hvernig sú merking sem landar leggja í hugtök á borð við fullveldi og framsal á því, hvað Evrópa er í augum okkar og hvort við teljum okkur hluta af henni eður ei. Já, og svo hvað það þýðir eiginlega þegar til kastanna kemur.

Aug 19, 2026

1 hr 8 min

Aug 18, 2026

49 min

Fáir þekkja íslensku stjórnarskránna betur en Birgir Ármansson, lögmaður og fyrrverandi forseti Alþingis, en hann var áður þingmaður Sjálfstæðisflokksins en er nú viðloðinn nei-hreyfinguna Áfram Ísland. Hann útskýrir að gera þurfi ýmsar breytingar á stjórnarskránni ef Ísland ætli að ganga inn í Evrópusambandið og slíkar breytingar þurfi eins konar tveggja þátta auðkenningu frá Alþingi. Málskotsrétturinn yrði enn á sínum stað en myndi þó ekki ná til Evrópulöggjafar. Hann fer um víðan völl og talar meðal annars um „salami-aðferðina“ en þannig lýsir hann aðlögunarferlinu að Evrópusambandinu. 

Aug 18, 2026

49 min

Aug 17, 2026

1 hr 33 min

Vorið 2009 tók við ríkisstjórn Vinstri grænna og  Samfylkingarinnar, í kjölfar bankahrunsins. Eitt umdeildasta  verkefni hennar varð umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu.  Jón Bjarnason sat í stjórninni sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þótt hann væri sjálfur eindreginn andstæðingur  aðildar. Í þessum þætti rekur Jón þessa sögu frá sínu sjónarhorni:  stjórnarmyndunina, varnagla Alþingis, umsóknarbréfið, makrílinn, óþægilega rússíbanareið og hótelið fræga í Kaliforníu.

Aug 17, 2026

1 hr 33 min

Aug 13, 2026

47 min

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, kveðst ekki ætla að láta stilla sér upp við vegg aðspurð um hvort hún myndi ráðleggja þjóðinni að hafna aðildarsamningi, fáist ekki undanþágur í sjávarútvegi, þrátt fyrir þann mikla  ávinning í öryggismálum, sem hún telur að felist í aðild að Evrópusambandinu. Elísabet Inga settist niður með ráðherra. 

Aug 13, 2026

47 min

Aug 13, 2026

22 min

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var gestur Íslands í dag þar sem hún settist niður með Elísabetu Ingu Sigurðardóttur fréttamanni og fór meðal annars yfir störf þingsins á liðnum vetri, efnahagsmálin og þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst.

Aug 13, 2026

22 min

Jul 2, 2026

1 hr 12 min

Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri samgöngum, fer yfir Borgarlínuverkefnið í heild.
Hvað er Borgarlínan? Hvaða vandamál á hún að leysa? Hvað kostar hún? Hvaða framkvæmdir fylgja henni? Af hverju á að fækka akreinum á sumum stöðum ef bílaumferð á samt eftir að aukast samkvæmt líkönum?
Við ræðum fyrstu lotuna, Suðurlandsbraut, áhyggjur íbúa og fyrirtækjaeigenda, þjóðarhöllina í Laugardal og stóru spurninguna um framtíð samgangna á höfuðborgarsvæðinu.

Jul 2, 2026

1 hr 12 min

Jun 16, 2026

51 min

Hildur Björnsdóttir fagnaði á dögunum stórafmæli á sama tíma og hún tók við sem borgarstjóri. Í glænýju hlaðvarpi Vísis ræðir Oddur Ævar Gunnarsson við Hildi um næstu skref í borgarstjórastólnum og en líka um æskuna og fjölskyldulífið. Síðasta kjörtímabil, meirihlutaviðræður og ósætti Miðflokksmanna auk fyrirhugaðra breytinga í borginni eru meðal þess sem fær að fljóta með.

Jun 16, 2026

51 min

Jun 11, 2026

26 sec

Fréttamenn Vísis setjast niður með áhugaverðu fólki, kafa í málefni líðandi stundar og ræða það sem vekur athygli hverju sinni. Hlaðvarpið sameinar fréttir, mannlegar sögur og menningu í víðum skilningi. Frá stjórnmálum til poppkúltúrs – og öllu þar á milli.

Jun 11, 2026

26 sec

Copyright 2026 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125