Vísir
Fréttamenn Vísis setjast niður með áhugaverðu fólki, kafa í málefni líðandi stundar og ræða það sem vekur athygli hverju sinni. Hlaðvarpið sameinar fréttir, mannlegar sögur og menningu í víðum skilningi. Frá stjórnmálum til poppkúltúrs – og öllu þar á milli.
Listen on:
Episodes

21 hours ago
21 hours ago
20 min
Draumar Demókrataflokksins um sigur í báðum deildum bandarískra þingsins rættist. En hvaða kosningar voru þetta? Hvað þýðir sigur hinna bláu? Hvers er von hjá Donald Trump það sem eftir er kjörtímabilsins. Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri fréttastofu Sýnar fékk Samúel Karl Ólason, fréttamann Vísis og sérfræðing í bandarískum stjórnmálum, til að útskýra kosningarnar á mannamáli.

5 days ago
5 days ago
52 min
Fáir ef nokkrir vita eins mikið um bíóbransann og Ásgrímur Sverrisson. Hann ræðir stöðu íslenskrar kvikmyndagerðar og þróun á þeim vettvangi; hvort þar ríki bölmóðurinn einn eða að menn geti farið að horfa fram á bjartari tíð með blóm í haga.

7 days ago
7 days ago
49 min
Formaður Miðflokksins segir umræðuna um regnbogafánana hafa komið sér á óvart. Hópar telji fánann þvingandi og útilokandi og segir formaðurinn hættu á að hann ýti börnum út í „eitthvað trend“. Menntakerfið megi ekki beina þeim í „einhverjar áttir“. Formaðurinn hefur ekki greitt atkvæði á þessu þingi en hyggst brátt tala manna mest og boðar nýjar tillögur í útlendingamálum.

Oct 27, 2026
Oct 27, 2026
1 hr 3 min
Skyndilegt brotthvarf forstjóra Landsvirkjunar og ládeyða á hlutabréfamarkaði er í brennidepli í fyrsta hlaðvarpsþætti Innherja þar sem farið er um víðan völl. Birgir Olgeirsson fréttamaður og Hörður Ægisson ritstjóri Innherja fá Ólaf Sigurðsson framkvæmdastjóra Birtu lífeyrissjóðs í heimsókn.

Oct 25, 2026
Oct 25, 2026
55 min
Myndlistarmaðurinn Tolli Morthens skefur ekki af því frekar en fyrri daginn. Hann skautar yfir ferilinn, segir af Íkarusi og samstarfinu við Megas, því að hann hafi ekki haft taugar í að feta glæpabrautina og segist hafa orðið skelfingu lostinn þegar hann greindist með krabbamein.

Oct 22, 2026
Oct 22, 2026
55 min
Í þriðja þætti Menningarvaktarinnar í vetur ræða þeir Símon Birgisson og Magnús Jochum Pálsson um leiksýninguna Djöfla sem nú er sýnd í Borgarleikhúsinu og hefur fengið misjafna dóma. Þær ræða einnig hina umdeildu kvikmynd Digger með Tom Cruise. Ómar Úlfur rýnir í nýjustu plötur þeirra Teits Magnússonar og bandaríska tónlistarmannsins Beck.

Oct 22, 2026
Oct 22, 2026
36 min
Logi Einarsson ætlar að flýta gerð nýs þjónustusamnings við Ríkisútvarpið þar sem miðlinum verða settar frekari skorður á samkeppnismarkaði. Nýr samningur átti að líta dagsins ljós í lok næsta árs en verður gerður á fyrri hluta ársins. Á svipuðum tíma boðar hann fyrstu háskólastefnu Íslands. Logi segir að það sem þar verður kynnt verði örugglega umdeilt en í stefnunni verði ekki að finna skipanir um sameiningu skóla.

Oct 18, 2026
Oct 18, 2026
55 min
Guðrún Vilmundardóttir útgefandi á tuttugu ára starfsamæli í útgáfubransanum um þessar mundir. Hún stýrir útgáfufélaginu Benedikt og er með afar tilþrifamikinn lista höfunda á mála hjá sér. Guðrún er stórættuð kona, afar hennar eru Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi menntamálaráðherra og Bjarni Benediktsson eldri – forsætisráðherra. Hún fer yfir ýmsa forvitnilega fleti á útgáfubransanum, segir af mjólkurkúm og lukkudýrum.

Oct 12, 2026
Oct 12, 2026
1 hr 20 min
Garpur I Elísabetarson fékk þau Kristján Karl Björnsson, Egil Trausta Ómarsson og Tinnu Miljevic til sín þar sem landsliðakeppnin í Bakgarðshlaupi var til umræðu. Keppnin fer fram næstu helgi þar sem 15 bestu hlauparar Íslands keppa við aðra hlaupara út um allan heim. Keppnin verður í beinni útsendingu á Vísi.

Oct 12, 2026
Oct 12, 2026
42 min
Seðlabankastjóri segir innlendar hækkanir á þjónustu og launum hafa mest áhrif á verðbólguna núna. Stýrivextir séu biturt meðal og ekki með glöðu geði sem þeim er beitt. Það sé rétt hjá verkalýðshreyfingunni að stýrivextir leggist misjafnlega á ólíka hópa en staðan sé að einhverju leyti afleiðing af þeirra eigin gjörðum. Rangar ákvarðanir hafi mögulega verið teknar í Seðlabankanum sem í raun reyni að reka velferðarstefnu. Umsjón: Elísabet Inga Sigurðardóttir.

